Partý Sveinki
Partý Sveinki
Sá sem segir að jólasveinar séu bara fyrir yngri kynslóðina hefur ekki verið í partýi með Jólasveinunum.
Að lágmarki tveir jólasveinar mæta með gítar og fá mannskapinn til að syngja með. Við blöndum saman jólalögum og stuðlögum sem allir þekkja og kryddum stemninguna með sprelli, athugasemdum og okkar eigin sýn á lífið.
Partý Sveinki hentar sérstaklega vel í jólapartý og fullorðinsveislur eftir að litlu krílin eru farin í háttinn.
- Að lágmarki tveir jólasveinar
- um 20 mínútna heimsókn
- 4–5 lög
- Jólalög og stuðlög
- Gjafaafhending (Gjafir eru ekki innifaldar.)
- Tilvalið fyrir 10–50 manns
Við þurfum að lágmarki 60 mínútna tímaramma fyrir heimsókn þína. Heimsóknin getur farið fram í byrjun eða lok tímarammans, en við reynum alltaf að koma eins nálægt miðju hans og hægt er. Þegar nær dregur heimsókninni sendum við nákvæmari tíma innan rammans.
Sendu okkur upplýsingar um partýið og við gerum þér tilboð.