Giljagaur var annar, með gráa hausinn sinn. -Hann skreið ofan úr gili og skaust í fjósið inn.
Hann faldi sig í básunum og froðunni stal, meðan fjósakonan átti við fjósamanninn tal.
(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)