Algengar spurningar um jólasveinaheimsóknir

Get ég sett eitthvað í pokann hjá ykkur?

Já, við komum alltaf með jólapokann með okkur og það er ekkert mál að lauma litlum pakka, nammi eða mandarínum með áður en við komum inn. Einnig bjóðum við upp á nammi og ávaxtanammi fyrir þá sem vilja hafa sem minnst fyrir hlutunum.

Hvað þýðir “tímarammi”?

Tímarammi fyrir mætingu þarf að vera að lágmarki 60 mínútur nema annað sé tekið fram. Fyrir Jólaboð í heimahúsi þarf tímaramminn að vera að lágmarki 90 mínútur. Á aðfangadag gilda sérstakir tímarammar fyrir opinn og fastan tíma, eins og lýst er hér fyrir neðan.

Tímarammi er svigrúm fyrir mætingu jólasveinanna, ekki lengd heimsóknarinnar. Heimsóknin getur farið fram í byrjun eða lok tímarammans, en við reynum alltaf að koma eins nálægt miðju hans og hægt er. Þegar nær dregur heimsókninni sendum við nákvæmari tíma innan rammans.

Af hverju er tímaramminn 4 klukkutímar á aðfangadag?

Á aðfangadag er opinn tími annaðhvort 08:00–12:00 eða 12:00–16:00. Þessi fjögurra klukkustunda tímarammi hjálpar okkur að skipuleggja heimsóknir dagsins. Einnig er hægt að bóka fastan tíma með að lágmarki 60 mínútna tímaramma.

Hvað koma margir Jólasveinar í heimsóknir?

Við komum ávallt að lágmarki tveir saman, en ekkert mál að bæta við fleirum ef aðstæður eru þannig.
Scroll to Top