Jólaboð í heimahúsi
Jólaboð í heimahúsi
Hver vill ekki fá jólasveina heim í jólaboðið?
Gerðu jólaboðið heima enn skemmtilegra og fáðu tvo jólasveina frá Sveinka í heimsókn. Við mætum alltaf tveir saman með góða skapið og gítarinn í hönd, sláum á létta strengi, syngjum nokkur lög og hristum upp í stemningunni.
Við stillum okkur upp í myndatöku með þeim sem vilja og afhendum gjafir úr pokanum ef þess er óskað. Heimsóknin hentar sérstaklega vel fyrir fjölskylduboð og minni hópa þar sem börn og fullorðnir koma saman.
- Tveir jólasveinar
- Um 20 mínútna heimsókn
- 3–5 lög
- Myndataka með gestum
- Gjafaafhending (Gjafir eru ekki innifaldar.)
- Tilvalið fyrir fjölskylduboð og minni hópa í heimahúsum
Við þurfum að lágmarki 90 mínútna tímaramma fyrir heimsókn þína. Heimsóknin getur farið fram í byrjun eða lok tímarammans, en við reynum alltaf að koma eins nálægt miðju hans og hægt er. Þegar nær dregur heimsókninni sendum við nákvæmari tíma innan rammans.
26.000 kr.