Jólasveinar í afmæli
Jólasveinar í afmæli
Gerðu afmælið enn eftirminnilegra með heimsókn frá jólasveinum Sveinka.
Að lágmarki tveir jólasveinar mæta með gítar, góða skapið og nóg af sprelli. Við syngjum nokkur jólalög, tökum að sjálfsögðu afmælissönginn fyrir afmælisbarnið og stillum okkur upp í myndatöku með gestum. Einnig getum við afhent gjafir úr pokanum ef þess er óskað.
Heimsóknin hentar sérstaklega vel fyrir barnaafmæli og afmælisveislur yfir vetrarmánuðina.
- Að lágmarki tveir jólasveinar
- um 20 mínútna heimsókn
- 3–5 lög, þar á meðal afmælissöngurinn
- Myndataka með gestum
- Gjafaafhending (Gjafir eru ekki innifaldar)
Við þurfum að lágmarki 60 mínútna tímaramma fyrir heimsókn þína. Heimsóknin getur farið fram í byrjun eða lok tímarammans, en við reynum alltaf að koma eins nálægt miðju hans og hægt er. Þegar nær dregur heimsókninni sendum við nákvæmari tíma innan rammans.
26.000 kr.