Bókunarskilmálar – Sveinki.is
1. Almennar upplýsingar
Sveinki.is býður upp á heimsóknir jólasveina í leikskóla, heimahús, fyrirtæki og viðburði.
Með því að bóka þjónustu hjá Sveinki.is samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála.
2. Bókun og staðfesting
- Allar bókanir fara fram í gegnum bókunarkerfi Sveinki.is eða með tölvupósti.
- Bókun telst ekki staðfest fyrr en kaupandi hefur fengið staðfestingu í tölvupósti frá Sveinki.is.
- Sveinki.is áskilur sér rétt til að hafna eða breyta bókun ef ófyrirséðar aðstæður koma upp.
3. Tímarammar og tímasetningar heimsókna
Almenn regla:
- Allar heimsóknir eru skipulagðar innan tímaramma.
- 60 mínútna tímarammi gildir nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Sértilvik:
- Heimahús: lágmark 120 mínútna tímarammi
- Aðfangadagur – Opinn tími:
- 08:00–12:00 eða 12:00–16:00
- 08:00–12:00 eða 12:00–16:00
- Aðfangadagur – Fastur tími:
- lágmark 60 mínútna tímarammi
- lágmark 60 mínútna tímarammi
4. Mæting innan tímaramma
- Heimsókn getur átt sér stað í upphafi eða lok tímarammans.
- Mikilvægt er að kaupandi geri ráð fyrir því við skipulag dagsins.
- Sveinki.is leggur þó alltaf áherslu á að mæta eins nálægt miðju tímarammans og mögulegt er.
- Staðfestur heimsóknartími er sendur kaupanda nokkrum dögum fyrir heimsókn, innan valins tímaramma.
6. Greiðslur
- Greiðsla fer fram samkvæmt þeim upplýsingum sem fram koma við bókun.
- Sveinki.is áskilur sér rétt til að krefjast fyrirframgreiðslu, sérstaklega á álagstímum eins og aðfangadegi.
7. Afbókanir og breytingar
- Afbókanir eða breytingar skulu berast í tölvupósti eins fljótt og auðið er.
- Ekki er hægt að afbóka heimsókn með minna en 7 daga fyrirvara.
- Ástæðan er sú að þá er búið (eða verið að) raða upp rúntum jólasveina og staðfesta aðrar heimsóknir og tímasetningar.
- Afbókanir með skemmri fyrirvara geta haft veruleg áhrif á skipulag og framkvæmd og áskilur Sveinki.is sér rétt til að innheimta fullt gjald.
8. Aðstæður á staðnum
- Kaupandi ber ábyrgð á að aðstæður séu öruggar fyrir gesti (jólasveina).
- Ef um er að ræða fjölmenna viðburði skal tryggja að skipulag og aðgengi séu skýr.
9. Myndir og myndefni
- Myndir eða myndbönd mega aðeins vera tekin með samþykki þeirra sem koma fram í þeim.
- Sveinki.is birtir aldrei myndefni af börnum nema með skýru samþykki forráðamanna.
10. Ábyrgð
Sveinki.is ber ekki ábyrgð á töfum vegna umferðar, veðurs eða annarra ófyrirséðra aðstæðna, en leggur sig fram um að upplýsa kaupanda eins fljótt og mögulegt er.
11. Samskipti
Allar fyrirspurnir, breytingar eða afbókanir skulu berast á:
📧 sveinki@sveinki.is