Vinnustaðaheimsóknir
Vinnustaðaheimsóknir
Er jólapeysudagur eða litlujól í vændum á þínum vinnustað? Sveinki hefur verið að skella sér í heimsóknir á vinnustaði og gítarinn góði fylgir ávallt með. Sveinki tekur nokkur lög, fíflast í mannskapnum og allir fá tækifæri til að ná sér í mynd með sveinka. Ómissandi gleði á vinnustaðinn. Mjög góð leið til að dreifa jólagjöfum til starfsfólks svona korter fyrir jól.
- 15-20 mín heimsókn
- 3-5 lög
- Dreifa gjöfum (gjafir ekki innifaldar)
- Tilvalið fyrir 5-100 manns