Þjónusta

38.000 kr.

Jólaboð

Vertu með skemmtilegasta jólaboðið í bænum og fáðu Jólasveina frá Sveinka með stuðið. Við mætum að sjálfsögðu með góða skapið og gítarinn góða í hönd. Sláum á létta strengi, syngjum nokkur lög og stillum okkur upp í myndatöku með þeim sem vilja ásamt því að gefa úr pokanum sé þess óskað.

Fá tilboð

Jólaball

Það er fátt sem er skemmtilegra fyrir yngri kynslóðina heldur en gott jólaball. Hérna fá Jólasveinarnir tækifæri til að sýna vel hvað í þeim býr. Við dustum rykið af dansstígvélunum góðu og dönsum í kringum jólatréð.

Fá tilboð

Partý Sveinki

Sá sem segir að jólasveinninn sé bara fyrir yngri kynslóðina hefur ekki verið í veislu með jólasveinum frá Sveinka. Sveinki kann nefnilega að rífa partíð upp á næsta plan.

15.000 kr.

Aðfangadagur - Opinn Tími

Allir Jólasveinarnir hjá Sveinka ferðast tveir saman á aðfangadag og kíkja glaðir í heimsókn. Þeir eiga það til að bresta í söng, skemmta ungum og gömlum og stilla sér upp í myndatöku.

25.000 kr.

Aðfangadagur - Fastur tími

Allir Jólasveinarnir hjá Sveinka ferðast tveir saman á aðfangadag og kíkja glaðir í heimsókn. Þeir eiga það til að bresta í söng, skemmta ungum og gömlum og stilla sér upp í myndatöku.

50.000 kr.

Heimahús 25-26. Desember

Að sjálfsögðu er hægt að fá þá bræður á jóladag og Annan í Jólum. Sveinkarnir mæta í sýnu fínasta jóladressi og skapi, gítarinn góða að sjálfsögðu í hönd. Komdu þínum gestum á óvart yfir jólin.

Fá tilboð

Vinnustaðaheimsóknir

Er jólapeysudagur eða litlujól í vændum á þínum vinnustað? Sveinki hefur verið að skella sér í heimsóknir á vinnustaði og gítarinn góði fylgir ávallt með.

26.000 kr.

Afmæli

Ekkert brýtur jafnvel upp á afmæli að vetri til og heimsókn frá Jólasveininum. Afmælisbörn elska að fá Jólasveininn í afmælið sitt. Sveinki kemur með góða skapið, sprellið, sungið jólalög og að sjálfsögðu afmælissönginn. Hægt er að koma hverju sem er fyrir í pokanum hans.

1.200 kr.

Litabók Sveinka

Litabók Sveinka er ekki bara venjuleg litabók – hún er hönnuð og sköpuð af sjálfum jólasveinunum! Í bókinni finnur þú 28 skemmtilegar síður sem bíða eftir að fá lit og líf með þínum eigin hugmyndum. Hvort sem þú vilt fylgja jólabragnum eða skapa þínar eigin útgáfur, þá er þetta bókin sem kveikir á hugmyndafluginu.

Fá tilboð

Sveinka - Allskonar

Við höfum gaman að allskonar skemmtilegum hugmyndum og erum snillingar í að gera hugmyndirnar þínar að veruleika. Sendu á okkur þínar hugmyndir og verðum í sambandi.

26.000 kr.

Heimahús

Hver vill ekki fá jólasveininn heim til að hitta fjölskylduna? Vertu skemmtilegasta foreldrið og fáðu Jólasveina frá Sveinka í heimsókn.
Scroll to Top